Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Haraldur Franklín Magnús – 16. mars 2013

Það er Haraldur Franklín Magnús, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Haraldur fæddist 16. mars 1991 og er því 22 ára í dag. Hann hóf 2011 keppnistímabilið á að sigra glæsilega Opnunarmót GR, 15. maí 2011 á 67 höggum! Um sumarið spilaði  Haraldur Franklín á Eimskipsmótaröðinni með góðum árangri. Hann sigraði m.a. á Símamóti mótaraðarinnar á Hvaleyrinni, í Hafnarfirði, 26. júní 2011.

Sl. sumar, 2012, varð Haraldur Franklín bæði Íslandsmeistari í holukeppni og höggleik! …. sá fyrsti úr röðum GR til að vinna  Íslandsmeistara-titilinn í höggleik í 27 ár!!!

Íslandsmeistarar í höggleik 2012: Haraldur Franklín Magnús, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL:  Mynd: gsimyndir.net

Íslandsmeistarar í höggleik 2012: Haraldur Franklín Magnús, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL: Mynd: gsimyndir.net

Eins var Haraldur Franklín í sigursveit GR í sveitakeppni GSÍ 2011 og tók í kjölfarið þátt í Evrópumóti golfklúbba í National Golf Club, Antalya í Tyrklandi, í október 2011 Sveit GR hafnaði í 15. sæti og lék Haraldur Franklín best í sveit GR.

Jafnframt var Haraldur Franklín ásamt þeim Axel Bóassyni, GK og Rúnari Arnórssyni, GK í liði Íslands á heimsmóti áhugamanna (Eisenhower Trophy) nú í október 2012, en liðið hafnaði í 27. sæti og var enn á ný spilað í Antalya í Tyrklandi.

Sem stendur er Haraldur Franklín við nám í Mississippi State, þar sem hann spilar með golfliði skólans.

Haraldur Franklín er auk þess í afrekshóp GSÍ, völdum af landsliðsþjálfaranum í golfi, Úlfari Jónssyni.

Sjá má viðtal Golf 1 við Harald Franklín með því að SMELLA HÉR: … og komast má á facebook síðu Haraldar til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Lucy Barnes Brown, f. 16. mars 1859 (Vann fyrsta US Women´s Amateur);  Richard Tufts, f. 16. mars 1896;  Hollis Stacy, 16. mars 1954 (59 ára);  Vincent Tshabalala, 16. mars 1943 (70 ára stórafmæli!!!) Simon Yates, 16. mars 1970 (43 ára);  Joakim Bäckström, 16. mars 1978 (35 ára);  Bud Cauley, 16. mars 1990 (23 ára)… og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is