Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Haraldur Franklín – 16. mars 2012

Það er Haraldur Franklín, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Haraldur fæddist 16. mars 1991 og er því 21 árs í dag. Hann hóf 2011 keppnistímabilið á að sigra glæsilega Opnunarmót GR, 15. maí 2011 á 67 höggum! Um sumarið spilaði  Haraldur Franklín á Eimskipsmótaröðinni með góðum árangri. Hann sigraði m.a. á Símamóti mótaraðarinnar í Hafnarfirði, 26. júní 2011.

Sigurvegarar á Símamóti GSÍ 2011 á Hvaleyrinni 26. júní 2011: Haraldur Franklín, GR og Tinna Jóhannsdóttir, GK. Mynd: gsimyndir.is

Eins var Haraldur í sigursveit GR í sveitakeppni GSÍ og tók í kjölfarið þátt í Evrópumóti golfklúbba í National Golf Club, Antalya í Tyrklandi, í október s.l. Sveit GR hafnaði í 15. sæti og lék Haraldur Franklín best í sveit GR.  Haraldur Franklín er auk þess í afrekshóp GSÍ, völdum af landsliðsþjálfaranum í golfi, Úlfari Jónssyni og fór m.a. í æfingaferð til Eagle Creek, Flórída nú í febrúar s.l.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Lucy Barnes Brown, f. 16. mars 1859 (Vann fyrsta US Women´s Amateur);  Richard Tufts, f. 16. mars 1896;  Hollis Stacy, 16. mars 1954 (58 ára);  Vincent Tshabalala, 16. mars 1943 (69 ára) Simon Yates, 16. mars 1970 (42 ára);  Joakim Bäckström, 16. mars 1978 (34 ára);  Bud Cauley, 16. mars 1990 (22 ára)… og …

F. 16. mars 1963 (49 ára)

F. 16 mars 1968 (44 ára)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is