Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hansína Þorkelsdóttir – 1. júní 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Hansína Þorkelsdóttir. Hansína er fædd 1. júní 1979 og því 37 ára í dag. Hún er ein af okkar bestu kylfingum og er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Hansína er alin upp í Mosfellsbænum, en býr í Reykjavík. Hún hefir spilað á íslensku mótaröðinni undanfarin sumur.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Dísa Í Blómabúðinni, 1. júní 1960 (56 ára); Rafnkell Guttormsson, 1. júní 1970 (46 ára);  Marisa Isabel Baena, 1. júní 1977 (39 ára) kólombísk á LPGA; Dagmar Una Ólafsdóttir, 1. júní 1981 (35 ára) Tano Goya (Argentínumaður á Evróputúrnum) 1. júní 1988 (28 ára) og Carlota Ciganda, 1. júní 1990 (26 ára); Villimey Iceland, 1. júní 1990 (26 ára) Nes Artist Residency,Handverksskúrinn Selfossi …. og ….. Celia Freitas

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is