Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Halldór X Halldórsson – 5. apríl 2023

Afmæliskylfingur dagsins er Halldór X Halldórsson, GKB. Halldór er fæddur 5. apríl 1976.  Þess mætti geta að Halldór á nákvæmlega sama afmælisdag og sænski kylfingurinn og næsti fyrirliði Ryder bikars liðs Evrópu: Henrik Stenson, Báðir eru þeir Halldor og Henrik fæddir 5. apríl 1976 og eiga því 47 ára afmæli í dag.

Halldór X er frá Sauðárkróki og byrjaði í golfi 1987. Hann er í Golfklúbbi Kiðjabergs, GKB . Halldór var mjög sigursæll í opnum mótum sumarið 2011, sigraði m.a. á Opna Carlsberg mótinu 30. júlí 2011 á Svarfhólsvelli á Selfossi (71 högg); Opna Golfbúðarmótinu á Svarfhólsvelli á Selfossi, 27. ágúst 2011 (71 högg) og Opna Vetrarmótinu í Leirunni 19. nóvember 2011 (70 högg) og þá er aðeins fátt eitt talið af afrekum Halldórs. Árið 2012 spilaði Halldór á Eimskipsmótaröðinni með góðum árangri. Besta skor hans er 69 í Leirunni. S.l. 2 ár hefir Halldór tekið þátt í nokkrum Opnum mótum með góðum árangri, eins og hans er von og vísa.

Halldór á eina dóttur, Guðrúnu Ernu, 21 árs, sem spilar golf. Sjá má viðtal Golf 1 við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:

Komast má á Facebook síðu Halldórs X til þess að óska afmæliskylfingnum til hamingju með daginn hér fyrir neðan:

Afmæliskylfingurinn Halldór X í golfi í Brautarholtinu. Mynd: Í einkaeigu
Halldór X Halldórsson (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Lady Margaret Rachel Scott, f. 5. april 1874 – d. 27. janúar 1938); John F. „Johnny” Revolta f. 5. apríl 1911 – d. 3. mars 1991;  Morten Geir Ottesen, 5. apríl 1959 (64 ára);  Bob Burns, 5. apríl 1968 (55 ára);  Henrik Stenson, 5. apríl 1976 (47 ára) Brendan Steele, 5. apríl 1983 (40 ára STÓRAFMÆLI!!!) – leiddi m.a. á PGA Championship 2011 fyrir lokadaginn…. og ….. Íslenskur Ferðamarkaður, 5. apríl 1982 (41 árs); Ryan Brehm, 5. apríl 1986 (37 ára – Spilar á PGA Tour); Bílabankinn Bílasala, 5. apríl 1989 (34 ára) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is