Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2013 | 13:55

Afmæliskylfingur dagsins: Halla Björk Ragnarsdóttir – 27. september 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Halla Björk Ragnarsdóttir. Halla Björk er fæd 27. september 1994 og á því 19 ára í dag. Halla Björk er afrekskylfingur í GR og klúbbmeistari Golfklúbbs Öndverðarness 2012. Halla Björk spilaði m.a. á Íslandsbankamótaröðinni í sumar og eins í nokkrum opnum mótum t.a.m. Opnunarmóti Korpunnar.  Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Halla Björk Ragnarsdóttir (Innilega til hamingju með daginn!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Kathy Whitworth, 27. september 1939 (74 ára);  Armando Saavedra, 27. september 1954  (59 ára);  Rachel L. Bailey, 27. september 1980 (33 ára – spilar á ALPG) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is