Afmæliskylfingur dagsins: Gylfi Sigfússon – 23. febrúar 2021
Afmæliskylfingur dagsins er Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips. Gylfi er fæddur 23. febrúar 1961 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Gylfi er m.a. fv. forstjóri Eimskips og skrifaði m.a. fyrir hönd fyrirtækisins undir stofnsamning Forskots, styrktarsjóðs afrekskylfinga 14. júní 2012. Gylfi spilar sjálfur golf bæði í viðskiptum og sér til ánægju og er félagi í tveimur golfklúbbum hérlendis: Golfklúbbi Reykjavíkur og Golfklúbbi Vestmannaeyja. Gaman er nú á þessum tímamótum að rifja upp eldra viðtal sem Golf 1 tók við Gylfa sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
Gylfi er kvæntur Hildi Hauksdóttur og eiga þau tvo syni Gylfa Aron og Alexander Aron, en öll fjölskyldan spilar golf.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Guðrún Sverrisdóttir, GB, 23. febrúar 1955 (66 ára); Hlöðver Sigurgeir Guðnason, GKG 23. febrúar 1957 (64 ára) – hann fór m.a. holu í höggi á æfingahring á Víkurvelli hjá GMS í sveitakeppni 2. deildar eldri karla í ágúst 2012); Michael Campell, 23. febrúar 1966 (55 ára); Steve Stricker, 23. febrúar 1967 (54 ára); Jóhannes Stefánsson (48 ára); Amelia Lewis, 24. febrúar 1991 (30 ára STÓRAFMÆLI – spilar á LET); Bergur Einar (24 ára) ….. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
