Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Guðmundur Ágúst Kristjánsson – 8. október 2014

Afmæliskylfingur dagsins er  Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR.  Guðmundur Ágúst er fæddur 8. október 1992 og á því 22 ára afmæli í dag! Guðmundur Ágúst hefir m.a. orðið Íslandsmeistari í holukeppni 2013.  Hann spilar golf í bandaríska háskólagolfinu, með golfliði Eeast Tennessee State University (ETSU).

Guðmundur Ágúst er einn af 3 Íslendingum sem unnið hafa Duke of York keppnina, en hann vann hana fyrstur Íslendinga árið 2010.

Andrew prins, Duke of York og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, 2010.

Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Guðmundur Ágúst Kristjánsson (22 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar eru:  Margaret Curtis, f. 8. október 1883- d. 24. desember 1965;  Thomas Dickson „Tommy“ Armour III, 8. október 1959 (55 ára);  Bernd Wiesberger, 8. október 1985 (29 ára);  Stacy Lee Bregman, 8. október 1986 (frá Suður-Afríku, spilar á LET – 28 ára); Mu Hu, 8. október 1989 (25 ára);  Seuk-hyun Baek, frá S-Kóreu, 8. október 1990 (24 ára)

…… og ……..

 Berglind Helgadóttir (46 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.i