Guðlaug María Óskarsdóttir, sigraði á Arctic Open nú fyrr í sumar og nú er hún líka sigurvegari í 1. flokki kvenna. Glæsilegur árangur hjá Guðlaugu Maríu – til hamingju!!! Mynd: Jónas Jónsson
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2013 | 20:55

Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaug María Óskarsdóttir – 12. september 2013

Það er Guðlaug María Óskarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Guðlaug María er fædd 12. september 1968 og á því 45 ára afmæli í dag!!!! Guðlaug María er í Golfklúbbi Akureyrar.  Hún sigraði m.a. á Arctic Open 2012 og var líka sigurvegari í 1. flokki kvenna. Hún hefir oftar en 1 sinni verið fyrirliði kvensveita GA.

Komast má á facebook síðu Guðlaugar Maríu til þess að óska henni til hamingju með stórafmælið hér að neðan:

Guðlaug María Óskarsdóttir (45 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Charles Henry „Chip” Beck, 12. september 1956 (57 ára); Angel Cabrera, 12. september 1969 (44 ára);  Shigeki Maruyama (丸山茂樹, Maruyama Shigeki; 12. september 1969 (44 ára) …. og …..

Joyce Baffoe (46 ára)

Salthúsið Grindavík (52 years old)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is