Gregory Bourdy fær afmælis nei reyndar sigurkoss frá kærestu sinni Annabelle Savignan eftir að hann vann UBS Hong Kong Open 2009
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Grégory Bourdy – 25. apríl 2012

Það er franski kylfingurinn Grégory Bourdy, sem er afmæliskylfingur dagsins. Grégory er fæddur  í Bordeaux, 25. apríl 1982 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Grégory á systur, Melodie einnig uppnefnd „Birdie Bourdy“, sem spilar á LET. Grégory hins vegar spilar á Evrópumótaröðinni. Hann hefir áhuga á kvikmyndum og íþróttum almennt. Til þess að sjá allt nánar um Grégory má sjá heimasíðu hans HÉR:

Grégory og Annabelle

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Chris Johnson, 25. apríl 1958 (54 ára); Wes Martin, 25. apríl 1973 (39 ára)…. og ……

F. 25. apríl 1968 (44 ára)
F. 25. apríl 1957 (55 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is