Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kristinn J. Gíslason – 22. júní 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Kristinn J. Gíslason. Kristinn er fæddur 22. júní 1952 og á því 60 ára stórafmæli í dag!!! Kristinn er í Golfklúbbi Reykjavíkur og er góður kylfingur. Hann er kvæntur Elísabetu Maríu Erlendsdóttur og eiga þau afrekskylfingana Alfreð Brynjar, klúbbmeistara GKG 2011 og Ólafíu Þórunni, klúbbmeistara GR 2011 og Íslandsmeistara í höggleik og holukeppni 2011 og auk þess Kristinn Jósep, Elínborgu og Lóu Kristínu.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Julio Cesar Zapata, 22. júlí 1976 (36 ára);  Dustin Johnson, 22. júní 1984 (28 ára) ….. og ……

Gauti Grétarsson, NK (52 ára)

Axel Rudolfsson, GR (49 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is