Ragnheiður Jónsdóttir | september. 15. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Fulton Peter Allem – 15. september 2017

Það er Fulton Peter Allem sem er afmæliskylfingur dagsins.  Allem er fæddur 15. september 1957 í Kroonstad, Orange Free State, í S-Afríku og á því 60 ára stórafmæli í dag!!! Allem hefir sigrað 11 sinnum á ferli sínum á Sólskinstúrnum s-afríska og eins þrívegis á bandarísku PGA mótaröðinni. Besti árangur Allem á risamóti er T-31 árangur á PGA Championship 1993  Peter er kvæntur Jennifer Allem og á 4 börn:  Nadíu Allem, Sybil Allem, Sophiu Allem og Nicholas Allem.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Karsten Solheim 15. september 1911 (hefði orðið 106 ára í dag); Fulton Peter Allem 15. september 1957 (60 ára STÓRAFMÆLI!!!); Sonja Ingibjörg Einarsdóttir, 15. september 1961 (56 ára); Elfur Logadóttir 15. september 1971 (46 ára) Kevin Sangwook Na (á kóreönsku: 나상욱 og hanja: 羅相昱), 15. september 1983 (34 ára); Shi Hyun Ahn (á kóreönsku: 안시현) 15. september 1984 (33 ára); Agöthu Christie Klúbburinn, 15. september 1990 (27 ára) ….. og ….. Halldór Jón Jóhannesson

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is