Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Friðrik Sverrisson og Christa Johnson – 25. apríl 2023

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir. Það eru þau Friðrik Sverrisson og  Christa Johnson.

Christa fæddist 25. apríl 1958 og á því 65 ára afmæli í dag! Hún lék á LPGA og sigraði í 9 mótum á árunum 1980-2008, þ.á.m. einu risamóti kvennagolfsins Women´s PGA Championship. Christa býr með eiginmanni sínum Duane A. Bernard, Forstjóra Phoenix Health Services, í Arizona.

Hinn afmæliskylfingurinn er Friðrik Sverrisson. Friðrik fæddist 25. apríl 1968 og á því 55 ára afmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu Friðriks til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan

Friðrik Sverrisson

Friðrik Sverrisson – 55 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Henry Ciuci (f. 25. apríl 1903 – d. janúar 1986); Carl Jerome „Jerry“ Barber (f. 25. apríl 1916 – d. 23. september 1994); Halldór Tryggvi Gunnlaugsson, 25. apríl 1957 (66 ára); Wes Martin, 25. apríl 1973 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Grégory Bourdy, 25. apríl 1982 (41 árs) …. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is