Afmæliskylfingur dagsins: Fannar Ingi Steingrímsson – 7. október 2013
Það er Fannar Ingi Steingrímsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Fannar Ingi er fæddur 7. október 1998 og er því 15 ára í dag. Fannar Ingi er í GHG, þ.e. Golfklúbbi Hveragerðis.
Fannar Ingi spilaði á Íslandsbankamótaröðinni s.l. sumar með góðum árangri. Sem fyrr tók Fannar Ingi einnig þátt í nokkrum mótum erlendis með góðum árangri. Þannig keppti hann í maí s.l. á US Kids European Championship sem fram fór á golfvelli Luffness New Golf Club í Skotlandi. Þar lauk Fannar Ingi keppni í 2. sæti.
Eftirminnilegast af árinu er þó e.t.v. 2. mótið á Íslandsbankamótaröðinni, sem fram fór á Strandarvelli á Hellu. Þar sigraði Fannar Ingi með glæsihring upp á 61 högg!!!
Í byrjun júní varð Fannar Ingi síðan í 9. sæti á Eimskipsmótaröðinni (aðeins 14 ára!!!) úti í Eyjum, þar sem keppt var í leiðindarigningarúrhelli síðari daginn.
Fannar Ingi komst í 8 manna úrslit á Íslandsmótinu í holukeppni í drengjaflokki en laut þar í lægra haldi fyrir Birgi Birni Magnússyni 3&1.
Fannar tók síðan þátt í Finnish International Junior Championship þar sem hann deildi 28. sæti á 13 yfir pari (79 78).

Keppendurnir 12 á Finnish International Junior Championship – Ragnhildur er fyrir miðju myndarinnar í rauðum bol – þ.e. 2. frá vinstri af þeim sem eru í rauðum bol
Stuttu síðar var hann við keppni í Kaliforníu í gríðarlega sterku heimsunglingamóti, Callaway Junior World Golf Championship þar sem hann varð í 26. sæti.
Enn tók Fannar Ingi þátt í feykisterku unglingamóti,US Kids Golf Teen World Championship, þar sem hann varð í 5. sæti, sem var stórglæsilegur árangur í ljósi þess að keppendur voru 130 víðs vegar að úr Bandaríkjunum og heiminum öllum. Leikið var á Pinehurst golfvellinum í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum.
Fannar varð síðan þegar heim var komið í 6. sæti á Íslandsmóti unglinga í höggleik, þ.e. drengjaflokki og í 3. sæti á 7. og síðasta móti Íslandsbankamótaraðarinnar, sem fram fór í Grafarholtinu.
Loks mætti geta þess að Fannar Ingi ásamt 5 öðrum fræknum gerði okkur öll geysistolt þegar piltalandsliðið okkar komst áfram úr undankeppni fyrir EM varð í 3. sæti í liðakeppninni og Fannar Ingi í 2. sæti í einstaklingskeppninni!!!
Sjá má aðeins eldra viðtal Golf 1 við Fannar Inga með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju hér að neðan
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024





