
Afmæliskylfingur dagsins: Emma Cabrera Bello – 22. nóvember 2020
Afmæliskylfingur dagsins er Emma Cabrera Bello. Emma er fædd 22. nóvember 1985 og á því 35 ára afmæli. Emma byrjaði að spila golf 5 ára og býr nálægt Maspalomas golfvellinum, sem mörgum Íslendingum er að góðu kunnur. Hún er samt félagi í fínasta golfklúbbnum á Gran Kanarí: Real Club de Golf de Las Palmas, en völlur klúbbsins er byggður ofan í eldfjallagíg. Meðal áhugamála afmælisbarnsins er lestur góðra bóka, að vera á skíðum hvort heldur svig eða vatns-, henni finnst auk þess gaman að fara í kynnisferðir til að kynna sér nýja staði sem hún ferðast til.
Bróðir Emmu er Rafa, sem spilar á Evrópumótaröðinni.
Emma er með gráðu í viðskiptafræði og stjórnun frá University of Las Palmas de Gran Canaria. Hún var í mastersnámi, Master of Science (MSc.) í frumkvöðlafræðum frá september 2011-september 2012 við University of ESADE í Barcelona (en háskólinn þykir meðal 15 bestu á heimsvísu). Hún segir að það hafi verið frábær reynsla, sem bæti golfið hjá sér.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ralph Guldahl, f. 22. nóvember 1911 – d. 11. júní 1987; Hafsteinn Hafsteinsson, 22. nóvember 1964 (56 ára); Arnar Laufdal Ólafsson …. og ….
Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- janúar. 15. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sirrý Hallgríms ——- 15. janúar 2021
- janúar. 15. 2021 | 09:00 PGA: 3 efstir & jafnir e. 1. dag Sony Open
- janúar. 15. 2021 | 08:00 Angel Cabrera handtekinn af Interpol í Brasilíu
- janúar. 14. 2021 | 20:49 Svar Kevin Kisners við því hvort hann geti sigrað hvar sem er
- janúar. 14. 2021 | 20:00 PGA: Pebble Beach mótið spilað án áhugamannanna vegna Covid
- janúar. 14. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Henriksen og Gunnar Smári Þorsteinsson – 14. janúar 2021
- janúar. 14. 2021 | 10:00 GSÍ: Reglur varðandi framkvæmd æfingar og keppni á Covid tímum
- janúar. 14. 2021 | 08:00 GR: Þórður Rafn nýr íþróttastjóri GR! Haukur Már kemur inn í þjálfarateymið!
- janúar. 14. 2021 | 07:00 LPGA: Yealimi Noh, meðal þeirra sem eru nýliðar aftur 2021!
- janúar. 13. 2021 | 18:00 PGA: Áhorfendum fækkað á Phoenix Open og grímuskylda!
- janúar. 13. 2021 | 16:30 Áskorendamótaröð Evrópu: Mótum í S-Afríku frestað
- janúar. 13. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðjón Frímann Þórunnarson – 13. janúar 2020
- janúar. 13. 2021 | 13:00 Evróputúrinn: Boðskortin á Sádí International
- janúar. 13. 2021 | 10:00 Sonur Gary Player hvetur föður sinn til að skila Trump frelsisorðunni
- janúar. 13. 2021 | 08:00 Vegas með Covid