Afmæliskylfingar dagsins: Einar G. Gunnarsson og Sergio Garcia – 9. janúar 2019
Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Einar Guðberg Gunnarsson og Sergio Garcia.
Einar Guðberg Gunnarsson er fæddur 9. janúar 1949 og á því 70 ára merkisafmæli í dag. Hann er kvæntur Guðnýju Sigurðardóttur. Komast má á facebook síðu Einars Guðberg til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Einar Guðberg – Innilega til hamingju með 70 ára merkisafmælið!!!
Hinn afmæliskylfingurinn er spænski kylfingurinn Sergio Garcia Fernández. Sergio er fæddur í Borriol, á Castellón, á Spáni, 9. janúar 1980 og á því 39 ára afmæli í dag.
Hann var í fréttum fyrir 6 árum síðan 2013, þegar hann lét Tiger fara í taugarnar á sér og lét falla nokkur vel valin orð um kjúklingaætuna, orð sem túlkuð voru sem kynþáttaníð.
Öllu skemmtilegri var fréttin um Garcia þegar hann sigraði á Thaíland Golf Open með kærustu sína, austurrísku leikkonuna Katharinu Boehm á pokanum fyrir 6 árum síðan. Það er gamalt samband því fyrir tveimur árum, 2017, kvæntist hann núverandi eiginkonu sinni Angelu Akins og eignuðust þau hjónakornin sitt fyrsta barn Azaleu Garcia, þann 14. mars á sl. ári, 2018.
Fyrir u.þ.b. 3 árum síðan voru fréttir að Sergio spilaði gjarnan knattspyrnu með heimaliði sínu í Borriol, lið sem hann styrkir mjög fjárhagslega. Reyndar heldur Garcia heimili á 3 stöðum í heiminum: Borriol, Crans-Montana í Sviss og í Orlandó, Flórída.
Sergio Garcia gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 20 árum síðan, 1999. Síðan þá hefir hann sigrað í 34 mótum víðsvegar í heiminum, þ.á.m. 10 sinnum á PGA Tour og 15 sinnum á Evrópumótaröðinni. Í janúar fyrir 5 árum, 2014 vann Garcia í Commercial Bank Qatar Masters þegar hann hafði betur gegn Mikko Ilonen frá Finnlandi í bráðabana. Eins stóð Garcia sig vel í Opna breska risamótinu 2014, varð T-2 þ.e. deildi 2. sætinu með öðrum 2 höggum á eftir sigurvegaranum Rory McIlroy. Með þessum glæsiárangri komst Garcia aftur á topp-10 á heimslistanum. Í dag, í ársbyrjun 2019 er Garcia í 26. sæti heimslistans. . Besta árangri sínum í risamóti náði Garcia þó á árinu 2017 þegar hann sigraði loks í risamóti og það Masters mótinu sjálfu. Það kom engum á óvart að Garcia skyldi hafa verið valinn kylfingur ársins 2017.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kristín Finnbogadóttir, 9. janúar 1957 (62 árs); Sallý Dáleiðsla 9. janúar 1957 (62 ára); Teitur Örlygsson, 9. janúar 1967 (52 ára); Alejandro Cañizares, 9. janúar 1983 (36 ára); Tiffany Tavee, 9. janúar 1985 (34 ára) ….. og …… Birkir Már Birgisson; Salvör Kristín Héðinsdóttir; Júlíus Fjeldsted og Fiskbúðin Mos
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
