Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Don Johnson ——– 15. desember 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Don Johnson. Don er fæddur 15. desember 1949 og því 72 ára afmæli í dag. Don er leikari og mikill áhugakylfingur, einn sá besti af Hollywood-genginu, með 8,3 í forgjöf. Þekktastur er Don eflaust þekktur fyrir hlutverk sitt sem „Sonny“ Crockett í Miami Vice þáttunum og fyrir að hafa verið kvæntur Melanie Griffith áður en hún giftist og skyldi við Antonio Banderas. Don og Melanie eiga saman dótturina Dakota. Nú í seinni tíð er Don Johnson eflaust einnig þekktur fyrir leik sinn í „Django Unchained“.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jeev Milkha Singh, 15. desember 1971 (51 árs); Vignir Þór Birgisson 15. desember 1981 (41 árs); Jane Park, 15. desember 1986 (36 ára); Nontaya Srisawang, frá Thaílandi 15. desember 1987 (35 ára); Robin Siegrist, 15. desember 1993 (29 ára); Klara Spilková, 15. desember 1994 (28 ára) …. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is