Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: David G. Barnwell – 2. mars 2018

Það er golfkennarinn David George Barnwell, sem er afmæliskylfingur dagsins. David er fæddur 2. mars 1961 og á því 57 ára afmæli í dag. David er Englendingur, sem starfað hefir við golfkennslu hér á landi með hléum í yfir 25 ár. Hann hefir m.a. kennt á Norðurlandi hjá GA og GH og nú síðast hjá Pro Golf, sem hann starfaði einnig hjá 2007 og 2008. David er einn af stofnendum PGA á Íslandi.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

David George Barnwell (57 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Pamela Barnett, 2. mars 1944 (74 ára – lék á LPGA); Jorge Soto 2. mars 1945 (73 ára); Þórdís Unndórsdóttir (69 ára); Ólafur Örn Ólafsson, GKB, 2. mars 1956 (62 ára); Ian Harold Woosnam, 2. mars 1958 (60 ára STÓRAFMÆLI!!!);  Phil Jonas (kanadískur kylfingur á Senior Tour – evrópsku öldungamótaröðinni), 2. mars 1962 (56 ára); Þorsteinn J. Vilhjálmsson 2. mars 1964 (54 ára); Topon Stekkjarberg (44 ára); Hlynur Þór Stefánsson (36 ára); Joanna Klatten, 2. mars 1985 (33 ára) .… og …. Nikulás Einarsson

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is