Afmæliskylfingur dagsins: Dagbjartur Sigurbrandsson, Hulda Hlín Magnúsdóttir og Joyce Wethered – 17. nóvember 2017
Afmæliskylfingar dagsins eru þrír: Dagbjartur Sigurbrandsson, Hulda Hlín Magnúsdóttir og Joyce Wethered.
Dagbjartur Sigurbrandsson er fæddur 17. nóvember 2002 og á því 15 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbi Reykjavíkur og hefir verið að gera góða hluti á Íslandsbankamótaröðinni í ár. Komast má á facebook síðu Dagbjarts til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Dagbjartur Sigurbrandsson, GR. Mynd: Golf 1
Dagbjartur Sigurbrandsson – Innilega til hamingju með 15 ára afmælið!!!
Hulda Hlín er fædd 17. nóvember 1977 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Hægt er að komast á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan

Hulda Hlín. Mynd: Í einkaeigu
Hulda Hlín – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!
Joyce Wethered, Lady Heathcoat-Amory fæddist 17. nóvember 1901 í Surrey á Englandi og dó í London 1 degi eftir 96 afmælisdag sinn, 1997 í London. Hún er álitin einn besti kvenkylfingur, sem Englendingar hafa átt. Í dag hefði Joyce átt 115 ára afmæli.

Joyce Wethered
Joyce og bróðir hennar Roger, en Roger var T-1 á Opna breska 1921 (hann tapaði síðan í bráðabana), lærðu að spila golf sem smábörn. Joyce vann Britsh Ladies Amateur Golf Championship 4 sinnum (1922, 1924, 1925, and 1929) og var enskur meisari kvenna 5 ár í röð (1920–24).

Systkinin Roger og Joyce Wethered lærðu að spila golf sem krakkar.
Joyce giftist Sir John Heathcoat-Amory árið 1924 og varð þar eftir titluð Lady Heathcoat-Amorey. Leikur hennar og golfsveifla voru dáð af Bobby Jones, sem var besti kylfingur síns tíma. Bobby spilaði marga sýningarhringi með Joyce og mat golfleik hennar mikils. Joyce dró sig úr hlé úr keppnisgolfi 1930.

Bobby Jones og Joyce Wethered, 1935 í Atlanta.
Joyce hélt þó áfram að spila golf og var félagi í Worplesdon Golf Club í Surrey. Joyce Wethered fékk inngöngu í frægðarhöll kylfingar 1975. Sjá má sýningu með persónulegum munum hennar í Knitghtshayes Court í Devon, þar sem hún bjó.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jónas R Jónsson 17. nóvember 1948 (69 ára); Vilborg Sverrisdóttir, 17. nóvember 1961 (56 ára); Marco Dawson, 17. nóvember 1963 (54 árs) spilaði á PGA – komst í g. Q-school 2011; ; Berglind Snyrtimeistari Hjá Makeover
Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
