Dagbjartur Sigurbrandsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Dagbjartur Sigurbrandsson – 17. nóvember 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Dagbjartur Sigurbrandsson.  Hann er fæddur 17. nóvember 2002 og á því 17 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbi Reykjavíkur og hefir verið að gera góða hluti. Dagbjartur varð m.a. klúbbmeistari GR í karlaflokki 2018 og sigraði á Holliday Open í desember 2018.  Í mars 2019 varð Dagbjartur T-6 á Campionato Internazionale D´Italia Maschile. Síðan er Dagbjartur stigameistari á mótaröð þeirra bestu nú í ár, sigraði á 1. og 2. mótinu á þeirri mótaröð. Komast má á facebook síðu Dagbjarts til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Klúbbmeistarar GR 2018

Dagbjartur Sigurbrandsson – Innilega til hamingju með 17 ára afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Joyce Wethered, Lady Heathcoat-Amory f. 17. nóvember 1901 – d. 18. nóvember 1997);  Jónas R Jónsson 17. nóvember 1948 (71 árs); Vilborg Sverrisdóttir, 17. nóvember 1961 (58 ára); Marco Dawson, 17. nóvember 1963 (56 árs) spilaði á PGA – komst í g. Q-school 2011; ; Hulda Hlín, 17. nóvember 1977 (42 ára); Berglind Snyrtimeistari Hjá Makeover … og …

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is