
Afmæliskylfingur dagsins: Cheyenne Woods – 25. júlí 2022
Afmæliskylfingur dagsins er Cheyenne Nicole Woods, frænka Tiger og fyrrum liðsfélagi Íslandsmeistarans í höggleik 2011, 2014 og 2016, Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, í Wake Forest.
Cheyenne fæddist í Phoenix, Arizona, 25. júlí 1990 og á því 32 ára afmæli í dag.
Hún er dóttir Earl Dennison Woods Jr., eldri bróður Tiger Woods. Afi hennar Earl Woods eldri var fyrsti þjálfarinn hennar. Cheynne spilaði golf með golfliði Xavier College Preparatory og sigraði ár eftir ár Arizona 5A State Championships árin 2006 og 2007. Cheyenne útskrifaðist frá Wake Forest University 2012 þar sem hún spilaði golf með Demon Deacons. Cheyenne hefir sigrað á meira en 30 áhugamannamótum.
Árið 2009 þáði hún boð styrktaraðila til þess að spila á LPGA móti, the Wegmans LPGA. Það munaði 4 höggum að hún kæmist í gegnum niðurskurð.
Í apríl 2011 sigraði Cheyenne á Atlantic Coast Conference (ACC) championship.
Árið 2012 gerðist Cheyenne Woods atvinnumaður í golfi eftir útskrift frá Wake Forest. Hún komst í gegnum úrtökumót fyrir U.S. Women’s Open, varð í 2. sæti.
Frá árinu 2013 hefir Cheyenne leikið á Evrópumótaröð kvenna (LET). Hún sigraði á fyrsta móti sínu á LET 9. febrúar 2014 í Ástralíu þ.e. á Volvik RACV Ladies Masters.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: William „Bill“ Shankland, 25. júlí 1907 – 8. september 1998; Erla Pétursdóttir (63 ára); Craig Howard, 25. júlí 1970 (52 ára); Helgi Örn Eyþórsson, GLF, 25. júlí 1971 (51 árs) ….. og …….
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge
- ágúst. 7. 2022 | 14:50 Íslandsmótið 2022: Perla Sól og Kristján Þór leiða eftir 3. dag
- ágúst. 7. 2022 | 14:30 Íslandsmótið 2022: Lokatilraun til að spila 4. hring verður gerð kl. 16:30
- ágúst. 6. 2022 | 22:00 Íslandsmótið 2022: Hulda Clara og Sigurður Bjarki jöfnuðu vallarmetin á Vestmannaeyjavelli
- ágúst. 6. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (31/2022)
- ágúst. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Doug Ford, Pétur Steinar Jóhannesson og Michel Besancenay – 6. ágúst 2022
- ágúst. 5. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gylfi Rútsson – 5. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hjörtur Þór Unnarsson – 4. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 14:00 Forsetabikarinn 2022: Davis Love III útnefnir Simpson og Stricker sem varafyrirliða