Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2014 | 22:45

Afmæliskylfingur dagsins: Charlotta Sörenstam – 16. apríl 2014

Það er Charlotta Sörenstam sem er afmæliskylfingur dagsins. Charlotta er systir hinnar frægu Anniku Sörenstam, sem var einráð í kvennagolfinu um langt skeið sem nr.1 á Rolex-heimslista kvenna. Charlotta er fædd 16. apríl 1973 og á því 41 árs afmæli í dag. Charlotta starfar sem golfkennari við golfskóla systur sinnar og hefir m.a. verið með golfskýringaþætti á ýmsum golfmiðlum.

Lotta Sörenstam

Lotta Sörenstam

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mark Haastrup, 16. apríl 1984 (30 ára);  Michael Thompson, 16. apríl 1985 (29 ára – hann leiddi m.a. fyrir lokadag McGladreys mótsins í október 2011) …. og ….

F. 16. apríl 1962 (52 ára)
F. 16. apríl 1970 (44 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is