Afmæliskylfingur dagsins: Charley Hull –——- 20. mars 2020
Afmæliskylfingur dagsins er Charley Hull. Charley fæddist 20. mars 1996 og er því 24 ára í dag. Charley er einn alefnilegasti kylfingur Bretlands. Hún komst fyrst í fréttirnar fyrir u.þ.b. 7 árum, þar sem hún fékk ekki að taka þátt í Curtis Cup vegna þess að hún þáði boð um að keppa á Kraft Nabisco risamótinu og komst þ.a.l. ekki á æfingu með liði Breta&Íra.
Charley var yngst í sigurliði Solheim Cup 2013 og lagði þar sitt lóð á vogarskálarnar. Eins var hún í Solheim Cup liði Evrópu 2015 og 2017.
Charley er með keppnisrétt bæði á LET og LPGA, LPGA eftir þátttöku í Q-school LPGA .
Hún sigraði í fyrsta og eina móti sínu á LET til þessa, þ.e. á Lalla Meryem mótinu á Evróputúr kvenna, 2015. Síðan á Charley sigur á 1 móti LPGA mótaraðarinnar í beltinu þ.e. á CME Group Tour Championship, en þar átti hún 2 högg á So-yeon Ryu með heildarskor upp á 19 undir pari, 269 högg ( 67-70-66-66).
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Herta Kristjánsdóttir, 20. mars 1944 – d. 29. janúar 2014; Kathy Baker Guadagnino, 20. mars 1961 (59 ára); Arjun Atwal, 20. mars 1973 (47 ára); Sung Ah Yim (임성아), 20. mars 1984 (36 árs); Anna Maggý, 20. mars 1996 (24 ára); Lr Heilsuvörur Snyrtivörur, 20. mars 1967 (53 ára); D-prjón Prjón, 20. mars 1967 (53 ára); Gísli Rúnar Jónsson 20. mars …. og ….
Golf 1 óskar kylfingum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
