Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Charles Sifford – 2. júní 2012

Það er Charles Sifford sem er afmæliskylfingur dagsins. Charles Sifford fæddist í Charlotte, Norður-Karólínu 2. júní 1922 og á því 90 ára stórafmæli í dag!

Charles Sifford fyrsti blökkumaðurinn til að sigra golfmót á PGA - Hann varðaði veginn fyrir aðra sem fylgdu m.a. Tiger

Hann hóf feril sinn í golfi 13 ára þegar hann gegndi störfum kaddýs.  Seinna keppti hann á golfmótum svartra þar sem svörtum var ekki heimiluð þátttaka á PGA. Hann reyndi fyrst að komast á PGA 1952 á Phoenix Open og notaði boð þáverandi heimsmeistara í boxi Joe Louis, en varð m.a. fyrir líflátshótunum vegna litarháttar síns og mátti þola allskyns kynþáttatengd meiðyrði þegar hann keppti í mótum upp frá því. Sifford sigraði 1957 Long Beach Open, sem var óopinbert PGA mót en þá styrkt af sambandinu. Hann komst loks á PGA 1961 og vann tvö mót á mótaröðinni og síðan eitt á PGA Seniors Championship 1975.

Charles Sifford tekur við verðlaunum á Long Beach Open 1957

Sifford verður ævinlega minnst fyrir að vera baráttumaður fyrir jafnrétti og bættum hag blökkumanna. Baráttan var erfið og í viðtali sem ég las við Sifford ekki frá því að hann væri bitur.  Hann hefir þó hlotið ýmsar vegtyllur og er vel að þeim kominn þ.á.m. inngöngu í frægðarhöll kylfinga 2004, fyrstur blökkumanna og heiðursdoktorsnafnbót frá St. Andrews, vöggu golfíþróttarinnar.

Það eru menn eins og Sifford sem eru ljósberar í svartnætti fordóma og  fáfræði, illsku og ómannúð manneskjunnar og gerir líf okkar allra betra. Sifford er meira en framúrskarandi kylfingur – hann er sannkölluð hetja, goðsögn í lifanda lífi. Golf 1 hefir áður fjallað um blökkumenn í golfi, þ.á.m. Sifford, í nýlegri grein sem sjá má HÉR: 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  John H. Schlee, f. 2. júní 1939 – d. 2. júní 2000;  Craig Robert Stadler, 2. júní 1953 (59 ára) … og …


Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is