Ragnheiður Jónsdóttir | september. 19. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Brittany Lincicome – 19. september 2017

Afmæliskylfingur dagsins er bandaríski kylfingurinn Brittany Grace Lincicome. Hún er fædd 19. september 1985 í St. Petersburg, Flórída og því 32 ára í dag.

Brittany býr í bænum Seminole í Flórída, en bæjarheitið er hið sama og nafnið á eina indíánaættflokk, sem býr í Flórída, en þeir búa á Seminole-verndarsvæðinu og reka þar m.a. spilavíti.

Lincicome er meðal högglengstu kylfingur LPGA, slær um 278,6 yarda (255 metra).

Hún varð atvinnumaður 2004 eftir að hafa “útskrifast” í 20. sæti úr Q-school LPGA. Fyrsti sigur hennar var á HSBC-heimsmeistaramóti kvenna, þar sem hún sigraði Michelle Wie í fjórðungsúrslitum, Lorenu Ochoa í undanúrslitum og Julie Inkster í lokaeinvíginu um meistaratitilinn.

Næst sigraði hún í Ginn Open í apríl 2007, þar sem hún rétt marði Lorenu Ochoa á 72 holunni. Sama ár var Lincicome í fyrsta skipti með í liði bandaríkjamanna í Solheim Cup og síðan einnig í Solheim Cup 2009, en í bæði skiptin vann bandaríska liðið sigur.

Brittany Lincicome vann sinn fyrsta sigur í risamóti árið 2009, þegar hún vann Kraft Nabisco mótið með ótrúlegum erni á 18. braut. Svo sem hefð er fyrir í Kraft Nabisco mótinu stakk hún sér í tjörnina við 18. flot, til þess að fagna þessum risasigri.

Árið 2011 vann Brittany tvívegis á LPGA þ.e. í ShopRite LPGA Classic mótinu, 5. júní og í CN Canadian Women´s Open, 28. ágúst 2011. Árið 2012 sigraði hún ekki í neinu móti, á LPGA, en til dagsins í dag (19. september 2017 hefir hún sigrað 7 sinnum í LPGA mótum)

Í águst 2014, tapaði Lincicome í bráðabana fyrir  Inbee Park á LPGA Championship. Hún átti 1 högg á keppniauta sína allt að því að hún kom að lokaholunni, 72. holunni en náði aðeins skolla þar, þannig að það þurfti bráðabana, sem hún síðan tapaði  í fyrir Park, með skolla meðan Park var á parinu.

Lincicome  vann 2. risamótssigur sinn 2015, þegar hún sigraði á  ANA Inspiration, en þetta var í 2. skiptið sem hún sigraði á þessu risamóti.  Hún var jöfn annarri í 1. sætinu eftir að hafa sett niður örn á lokaholunni, alveg eins og þegar hún vann risamótið 2009. Lincicome hafði síðan betur í bráðabananum gegn Stacy Lewis, vann með pari á 3. holu bráðabanans.

Nú í ár 2017, sigraði Lincicome síðan í 7. LPGA móti sínu þ.e. Pure Silk-Bahamas LPGA Classic, þann 29. janúar 2017

Brittany Lincicome hefir 6 sinnum átt sæti í liði Bandaríkjanna í Solheim Cup: 2007, 2009, 2011, 2013, 2015 og 2017.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jane Blalock, 19. september 1945 (72 ára); Árni Björn Ómarsson, 19. speptember 1965 (52 ára);  Svanhildur Svavarsdóttir 19. september 1968 (49 ára);  Ryan Palmer, 19. september 1976 (41 árs); Garðar Kári Garðarsson 19. september 1986 (31 árs);  Melissa Reid, 19. september 1987 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!); Adam Örn Stefánsson, 19. september 1990 (27 ára); Tonje Daffinrud, (norsk spilar á LET Access) 19. september 1991 (26 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar öllum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is