
Afmæliskylfingur dagsins: Brenden Pappas – 7. maí 2022
Afmæliskylfingur dagsins er Brenden Pappas.
Brenden Pappas fæddist í Phalaborwa, Suður-Afríku, 7. maí 1970 og á því 52 ára afmæli. Hann er sá yngsti af 3 bræðrum; Sean (fæddur 1966) og Deane (fæddur 1967). Brenden og bróðir hans Deane spiluðu í bandaríska háskólagolfinu með University of Arkansas þaðan sem Brenden útskrifaðist árið 1993 með Bachelor’s gráðu í markaðsfræðum. Hann gerðist atvinnumaður í golfi seinna útskriftarár sitt 1993. Síðan þá hefir hann mestmegnis spilað á Sólskinstúrnum suður-afríska og 2. deildinni í Bandaríkjunum. Hann á í beltinu 3 sigra á þessum mótaröðum þ.e.:
Sólskinstúrnum:
1998 Vodacom Series: Gauteng
Nationwide Tour
2006 Rex Hospital Open
2011 Pacific Rubiales Bogotá Open
Brendan og bróðir hans Dean Pappas voru fyrstu bræðurnir til þess að komast á Nationwide Tour (nú Korn Ferry Tour) samtímis árið 2001.
Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru : Kathy Ahern 7. maí 1949 – 6. júlí 1996; Craig Wood, 7. maí 1968 (54 ára); Henrik Bjørnstad, 7. maí 1979 (43 ára) …. og ….
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- maí. 23. 2022 | 22:00 PGA Championship 2022: Justin Thomas sigraði!!!
- maí. 15. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ken Venturi ——– 15. maí 2022
- maí. 14. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (20/2022)
- maí. 14. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Hafsteinn Baldursson og Shaun Norris – 14. maí 2022
- maí. 13. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Finnur Sturluson – 13. maí 2022
- maí. 12. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Birgir Björn Magnússon – 12. maí 2022
- maí. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2022
- maí. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Jóhannsson og Mike Souchak – 10. maí 2022
- maí. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir – 9. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jens Gud ———-– 8. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 01:00 PGA: Keegan Bradley efstur f. lokahring Wells Fargo
- maí. 8. 2022 | 00:01 LET: Ana Pelaez í forystu f. lokahring Madrid Open
- maí. 7. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (19/2022)
- maí. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Brenden Pappas – 7. maí 2022
- maí. 7. 2022 | 12:30 Norman neitað um undanþágu til að spila á Opna breska