Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Björg Traustadóttir – 29. maí 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Björg Traustadóttir, í Golfklúbbi Ólafsfjarðar (GÓ). Björg á afmæli 29. maí 1965 og er því 47 ára í dag.  Björg er klúbbmeistari Golfklúbbs Ólafsfjarðar 2011 og sigraði auk þess í 1. flokki þ.e. forgjafarflokki 0-14 á Opna Lancôme mótinu 2012 á Hellu nú fyrr í mánuðnum.

Björg Traustadóttir, klúbbmeistari GÓ 2011 sigraði í 1. flokki (fgj. 0-14) á Lancôme Open 2012. Mynd: Golf 1

Björg er gift og á 3 börn.  Sjá má nýlegt viðtal Gofl 1 við klúbbmeistara Ólafsfjarðar (Björgu) með því að smella HÉR:  Komast má af facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér:

Björg Trausta (47 ára)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Patrick Joseph Skerritt, f. 29. maí 1926 – d. 21. nóvember 2001; Guðfinna Sigurþórsdóttir, 29. maí 1946 (móðir Karenar Sævars og Sigurþórs Sævarssonar – Fyrsti golfmeistari Íslands í kvennaflokki, 1967. Eina konan í hópi stofnenda GS, 1964);  Noh Seung-yul, 29. maí 1991

….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is