Bjarki Pétursson, GB. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Bjarki Pétursson – 2. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Bjarki Pétursson. Bjarki er fæddur 2. desember 1994 og því 18 ára í dag. Hann er afrekskylfingur í Golfklúbbi Borgarness (GB) og m.a. klúbbmeistari GB, 4. árið í röð á þessu ári. Það sem var merkilegt í Meistaramóti GB í ár var m.a. að Bjarki fór holu í höggi á 14. holu Hamarsvallar!!!

Bjarki Pétursson eftir að hann fór holu í höggi á Meistaramóti GB 2012. Mynd: Í einkaeigu.

Bjarki var m.a. valinn efnilegasti kylfingur Íslands á lokahófi GSÍ, 10. september 2011. Árið 2011 tók Bjarki þátt  í Duke of York mótinu á Hoylake vellinum hjá Royal Liverpool klúbbnum og náði 16. sæti, sem er góður árangur í ljósi þess að veðrið var að leika keppendur grátt alla dagana. Árið 2011 var Bjarka gott en hann varð Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára pilta bæði í holukeppni og höggleik og m.a. kjörinn Íþróttamaður Borgarfjarðar á Íþróttahátíð UMSB í kjölfarið.

Bjarki Pétursson, GB, á síðari keppnisdegi Örninn Golfverslun, 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar, 27. maí 2012, á 7. braut í Leirunni. Mynd: Golf 1

Á þessu ári 2012 hefir Bjarki spilað bæði á Unglingamótaröð Arion banka og á Eimskipsmótaröðinni.  Hann vann 1. mótið á Unglingamótaröðinni uppi á Skaga, sem og 3. mótið í Korpunni.

Bjarki hefir spilað á mótum erlendis í ár m.a. tók hann þátt í Finnish Amateur Championship dagana 16.-18. ágúst s.l.

Þá var Bjarki í verðlaunasæti (3. sæti) í einstaklingskeppninni á European Boys Challenge Trophy, sem fram fór í St. Sofia Golf & Spa, í Búlgaríu dagana 20.-22. september s.l.

Sjá má viðtal, sem Golf1 tók við afmæliskylfinginn á árinu með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu Bjarka til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Bjarki Peturson (18 ára – Innilega til hamingju með afmæið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  John Matthew Shippen, Jr., (f. 2. desember 1879 – d. 20. maí 1968); Jenny Lee Smith, 2. desember 1948 (64 ára);  Jay Haas, 2. desember 1953 (59 ára); Alexander Čejka, 2. desember 1970 (42 ára);  Marco Ruiz, 2. desember 1974 (38 ára);   ….. og ……

Logi Bergmann (46 ára)
Ölver Jónsson (42 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is