Birgir Leifur Hafþórsson verður með í Flórídaferðinni. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Birgir Leifur Hafþórsson – 16. maí 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, eini karlatvinnukylfingur Íslendinga, sem hefir náð að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröð karla og stolt svo margra í golfíþróttinni hérlendis. Birgir Leifur er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Birgir Leifur er fæddur 16. mars 1976 og á því stórafmæli í dag!!!  Hann hélt upp á afmælið í París.

Birgir Leifur og Elísabet. Mynd: Í einkaeigu

Birgir Leifur og Elísabet. Mynd: Í einkaeigu

Birgir Leifur lék á Evrópumótaröðinni 2007, en missti keppnisréttinn 2009 vegna meiðsla. Síðan þá hefir hann m.a. keppt á mótum Áskorendamótaraðar Evrópu.

Birgir Leifur hefir sigrað nánast allt sem hægt er hérlendis og af mörgu verður hér látið sitja við að hann er sexfaldur Íslandsmeistari í höggleik.

En Birgir Leifur er ekki aðeins einn fremsti kylfingur Íslendinga, heldur einnig framúrskarandi golfkennari, en það sem mestu skiptir alltaf góður, hvernig sem á það er litið.

Birgir Leifur er kvæntur Elísabetu Halldórsdóttur og eiga þau 3 börn.

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG. Mynd: Í einkaeigu

Birgir Leifur Hafþórsson Innilega til hamingju með stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bækur Og Kiljur, 16. maí 1958 (58 ára); Ty Armstrong, 16. maí 1959 (57 ára); Valgeir Vilhjálmsson, 16. maí 1969 (47 ára); Enn Þrír Plötusnúðar, 16. maí 1971 (45 ára); Ingi Rúnar Gíslason, 16. maí 1973 (43 ára); Andres Gonzales, 16. maí 1983 (33 ára); Bergur Jónasson, 16. maí 1987 (29 ára); Hanna Lilja Sigurðardóttir, 16. maí 1988 (28 ára) og Kling og Bang.

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is