Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2014 | 16:30

Afmæliskylfingur dagsins: Bergur Rúnar Björnsson – 14. ágúst 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Bergur Rúnar Björnsson.  Bergur Rúnar er fæddur 14. ágúst 2014 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Bergur Rúnar er í Golfklúbbi Ólafsfjarðar og leikur m.a. á Eimskipsmótaröðinni í ár og var í sveit GÓ sem varð í 2. sæti í 2. deild og leikur því í 1. deild á næsta ári!

Sveit GÓ í sveitakeppni GSÍ 2014

Sveit GÓ í sveitakeppni GSÍ 2014

Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Bergur Rúnar Björnsson (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar og golftengdir aðilar sem eiga afmæli í dag eru: GSÍ, 14. ágúst 1942 (72 ára); José Eusebio Cóceres. 14. ágúst 1963 (51 árs);  Paul Broadhurst, 14. ágúst 1965 (49 ára), Darren Clarke, 14. ágúst 1968 (46 ára); Lucas Bjerregaard, 14. ágúst 1991 (23 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar þeim, sem afmæli eiga í dag, innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is