Bergsteinn Hjörleifsson, nýendurkjörinn formaður GK, við 17. braut TPC Sawgrass golfvallarins. Mynd: Í einkaeigu.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023

Afmæliskylfingur dagsins er Bergsteinn Hjörleifsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði. Bergsteinn er fæddur 30. júlí 1962 og á því 61 árs afmæli í dag!!!  Hann var formaður Golfklúbbsins Keilis 2004-2014. Fjölskylda Bergsteins er mikið í golfi m.a. bróðir hans Magnús og sonur Bergsteins, Hjörleifu. Sjálfur hefir Bergsteinn tekið þátt í fjölda opinna móta með góðum árangri, auk þess sem hann var hér áður fyrr duglegur að draga fyrir son sinn á mótaröð þeirra bestu.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Graeme McDowell 30. júlí 1979  (44 ára);  Justin Rose, 30. júlí 1980 (43 ára);  Nino Bertasion, 30. júlí 1988 (35 ára);  Louise Larsson, 30. júlí 1990 (33 ára)  ….. og ……

Bergsteinn Hjörleifsson, við 17. braut TPC Sawgrass golfvallarins. Mynd: Í einkaeigu.

Bergsteinn Hjörleifsson  GK – 61 árs – Innilega til hamingju!!!

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum  til hamingju með merkisafmælið sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is