Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Berglind Björnsdóttir og Haukur Marinósson –————– 29. september 2017

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Berglind Björnsdóttir og Haukur Marinósson.

Haukur er í einum smæsta golfklúbbi landsins Golfklúbbnum Gljúfra (GOG). Hann er fæddur 29. september 1967 og á því 50 ára merkisafmæli í dag. Komast má á facebooksíðu Hauks til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan:

Haukur Marinósson, GOG

Haukur Marinósson – Innilega til hamingju með 50 ára merkisafmælið!!!

Berglind er fædd 27. september 1992 og á því 25 ára stórafmæli í dag!!! Berglind er afrekskylfingur í Golfklúbbi Reykjavíkur og spilaði með liði UNCG í bandaríska háskólagolfinu. Berglind sigraði m.a. á 2. stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar í Vestmannaeyjum 2012. Í ár, 2017 sigraði Berglind á Egils Gull mótinu á Eimskipsmótaröðinni og er m.a. stigameistari GSÍ.  Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Berglindi með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan:

Berglind Björnsdóttir, GR. Mynd: Golf 1.

Berglind Björnsdóttir, GR. Mynd: Golf 1.

Berglind Björnsdóttir – Innilega til hamingju með 25 ára stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kermit Millard Zarley, Jr., 29. september 1941 (76 ára); Vicky Fergon, 29. september 1955 (62 ára) , sigraði CA LPGA 1979 Lady Stroh´s á sínum tíma; Svanhvít Friðþjófsdóttir, GV, 29. september 1965 (52 ára); Haukur Marinósson GOG, 29. september 1967 (49 ára); Kelly Robbins, 29. september 1969 (48 ára); Tina Fischer, Bad Nauheim, Þýskalandi, 29. september 1970 (47 ára); Gunnar Geir Baldursson NK, 29. september 1988 (29 ára) Berglind Bjornsdottir GR, 29. september 1992 (25 ára); Hildur Rún Guðjónsdóttir, GK 29. september 1994 (23 ára); Ingvar Andri Magnússon, GR, 29. september 2000 (17 ára) ….. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is