Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Ben Hogan og Garðar Rafn Halldórsson – 13. ágúst 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: einn besti kylfingur allra tíma, Ben Hogan og Garðar Rafn Halldórsson. Ben var fæddur 13. ágúst 1912 og hefði átt 110 ára stórafmæli í dag. Ben Hogan dó 25. júlí 1997, 84 ára eða á 85. aldursári.

Ben Hogan gerðist atvinnumaður 1930 og hætti keppni 1971 eftir 41 árs farsælan feril. Hann var  einkum þekktur fyrir fallega golfsveiflu sína. Ben Hogan sigraði 68 sinnum á atvinnumannsferli sínum þar af 64 sinnum á PGA Tour og situr í 4. sæti yfir þá sem sigrað hafa oftast á þeirri mótaröð.  Hogan vann 9 risamótstitla á ferli sínum. Hann fékk inngöngu í frægðarhöll kylfinga 1974. Hann vann auk þess til allra helstu verðlauna og viðurkenninga í golfheiminum.

Gerð var kvikmynd um ævi Ben Hogan sem heitir „Follow the Sun“ og sjá má 9 vinsælustu atriðin úr myndinni hérHOGAN FTS NR. 1 ;   HOGAN FTS NR. 2  ;  HOGAN FTS NR. 3HOGAN FTS NR. 4;   HOGAN FTS NR. 5 ;   HOGAN FTS NR. 6   ; HOGAN FTS NR. 7 ;   HOGAN FTS NR. 8  ; HOGAN FTS NR. 9  

Til þess að sjá samanburð á sveiflu Hogan og Tiger SMELLIÐ HÉR – HLUTI 1    –    SMELLIÐ HÉR HLUTI 2

Sjá stutt myndskeið um Hogan með því að SMELLA HÉR: 

Til þess að sjá ágrip af sögu Ben Hogan SMELLIÐ HÉR – HLUTI 1   –    SMELLIÐ HÉR HLUTI 2

Garðar Rafn Halldórsson er fæddur 13. ágúst 1992 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu Garðars Rafns til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan

 

Garðar Rafn – Innilega til hamingju með 30 ára stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru:

Hljómsveitin Myrká (109 ára); Betsy King 13. ágúst 1955 (67 ára); Mikael Lundberg, 13. ágúst 1973 (49 ára);  Jake McLeod, 13. ágúst 1994 (28 ára); Informationoffice Aboutfaroeislands ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is