
Afmæliskylfingur dagsins: Barbara Romack – 16. nóvember 2022
Barbara Gaile Romack fæddist 16. nóvember 1932 í Sacramento, Kaliforníu og er því 90 ára í dag.
Hún sigraði North and South Women´s Amateur mótið í Pinehurst 1952, Canadian Women´s Amateur 1953 og árið 1954 vann hún sjálfa Mickey Wright í US Women´s Amateur. Í kjölfarið var henni m.a. boðið í Hvíta húsið og hún og Bandaríkjaforsetinn Dwight Eisenhower urðu góðir vinir.
Árið 1955 varð Romack í 2. sæti á eftir Jessie Valentine í British Ladies Amateur, en mótið fór fram í Royal Portrush golfklúbbnum á Norður-Íralndi. Vegna afreka hennar þar var hún á forsíðu Sports Illustrated 16. apríl 1956. Í maí 1957 giftist hún Edward Wayne „Bud“ Porter, aðstoðargolfkennara á golfvelli hennar heima í Sacramento.
Romack varð í 2. sæti á eftir Anne Quast í US Women´s Amateur árið 1958. Eins var Barbara Romack í Curtis Cup liði Bandaríkjanna 1954, 1956 og 1958. Romack komst á LPGA 1958. en vann aðeins 1 mót Rock City Ladies Open, árið 1963. Hún hefir unnið á öldungamótaröðinni og hefir spilað golf allt sitt líf og spilar enn. Romack starfaði fyrir USGA sem sjálfboðaliði og á einum tímapunkti var hún varaforseti LPGA.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Betty Hicks, 16. nóvember 1920 (hefði orðið 102 ára); Gene Littier, 16. nóvember 1930 (92 ára); Salína Helgadóttir, GR, 16. nóvember 1958 (64 ára); Dagbjört Kristín Bárðardóttir, f. 16. nóvember 1975 (47 ára); Orri Heimisson, 16. nóvember 1995 (27 ára); Ævarr Freyr Birgisson, GA, 16. nóvember 1996 (26 ára) ….. og …..
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- janúar. 28. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2023)
- janúar. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2023
- janúar. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2023
- janúar. 25. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har, Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2023
- janúar. 24. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 06:00 PGA: Xander Schauffele með fyrsta albatrossinn á ferlinum á AmEx Open
- janúar. 23. 2023 | 05:15 Hvað var í sigurpoka Brooke Henderson?
- janúar. 23. 2023 | 05:00 PGA: Rahm rúllaði upp AmEx Open
- janúar. 22. 2023 | 22:40 Champions: Stricker sigraði í Hawaii
- janúar. 22. 2023 | 22:30 LPGA: Sigur Brooke Henderson öruggur á Hilton Grand Vacations TOC!!!
- janúar. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurbjörn Sigfússon og Unnur Ólöf Halldórsdóttir – 22. janúar 2023
- janúar. 22. 2023 | 14:45 Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu
- janúar. 21. 2023 | 23:59 LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn
- janúar. 21. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2023)