Það sem tíminn líður. Hér má sjá eina af Axel Fannari ásamt föður sínum 2012 – fyrir 6 árum síðan á móti Arionbankamótaraðarinnar! 🙂
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Axel Fannar Elvarsson – 12. mars 2012

Það er Skagamaðurinn Axel Fannar Elvarsson, GL, sem er afmæliskylfingur dagsins en Axel Fannar er fæddur 12. mars 1998 og á því 15 ára afmæli í dag!!! Axel Fannar hefir m.a. spilað m. á Arionbankamótaröð unglinga með góðum árangri. Hann stundar nám við Grundaskóla á Akranesi. Foreldrar hans eru Anna Guðbjörg Lárusdóttir og Sigurður Elvar Þórólfsson og hann á 2 systkini, Ísak Örn og Elísu.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Wallace William „Wally“ Ulrich, f. 12. mars 1921 – d. 7. apríl 1995; Nubohito Sato, 12. mars 1970 (43 ára);  W-7 módelið Minea Blomqvist, 12. mars 1985 (28 ára) og Sharmila Nicollet 12. mars 1991 (22 ára).

Golf 1 óskar afmæliskylfngnum sem og öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is