Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 3. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Axel Bóasson ——– 3. júní 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Axel Bóasson. Axel er fæddur 3. júní 1990 og á því 26 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Axel var við nám og spilaði golf með golfliði Mississippi háskóla, í Bandaríkjunum, en hann útskrifaðist vorið 2015. Hann er Íslandsmeistari í höggleik 2011.

Axel sigraði m.a. á 1. stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar upp á Skaga 2013 og endurtók þar með leikinn frá árinu 2011 þegar hann vann einnig á 1. stigamóti ársins þá.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér:

Axel Bóasson, GK. Mynd: Golf 1

Axel Bóasson (26 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!! )

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Hale Irwin, 3. júní 1945 (71 árs); Á Grænni Grein , 3. júní 1953 (63 ára); Baldvin K Baldvinsson, GO, 3. júní 1967 (49 ára) Ásgeir Ingvarsson, GKG, 3. júní 1977 (39 ára); Elísa Rún Gunnlaugsdóttir 3. júní 1997 (19 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is