Axel Bóasson, GK. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 3. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Axel Bóasson —— 3. júní 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Axel Bóasson. Axel er fæddur 3. júní 1990 og því 24 ára í dag.  Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Axel Bóasson, GK, sigurvegari Egils Gulls mótsins 1. móts Eimskipsmótaraðarinnar 2013.. Mynd: gsimyndir.net

Axel Bóasson, GK, sigurvegari Egils Gulls mótsins 1. móts Eimskipsmótaraðarinnar 2013.. Mynd: gsimyndir.net

Axel var við nám og spilaði golf með golfliði Mississippi háskóla, í Bandaríkjunum. Hann er  jafnframt Íslandsmeistari í höggleik 2011.

Axel sigraði  á 1. stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar upp á Skaga 2013 og endurtók þar með leikinn frá árinu 2011 þegar hann vann einnig á 1. stigamóti ársins þá. Sjá má viðtal við Axel af því tilefni með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér:

Axel Bóasson (24 ára)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Hale Irwin, 3. júní 1945 (69 ára); Ásgeir Ingvarsson, GKG, 3. júní 1977 (37 ára)

… og …

Á Grænni Grein (61 árs)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is