Axel Bóasson, í Leirunni á Örninn golfverslun 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar, 27. maí 2012. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 3. 2012 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Axel Bóasson, 3. júní 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Axel Bóasson. Axel er fæddur 3. júní 1990 og því 22 ára í dag.  Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Axel að spá í púttlínuna á Örninn golfverslun 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar 2012 á 5. flöt í Leirunni, 27. maí 2012. Mynd: Golf 1

Axel er við nám og spilar golf með golfliði Mississippi háskóla, í Bandaríkjunum og er núverandi Íslandsmeistari í höggleik. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér:

Axel Bóasson (22 ára)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Hale Irwin, 3. júní 1945 … og …

Á Grænni Grein (59 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is