Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2013 | 17:30

Afmæliskylfingur dagsins: Auðunn Einarsson – 24. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Auðunn Einarsson. Auðunn er fæddur 24. nóvember 1975 og er því 38 ára.  Auðunn er klúbbmeistari Golfklúbbs Ísafjarðar 2011 og 2012. Hann varð Íslandsmeistari í sveitakeppni GSí, með liði GK, árið 2008… og þá er aðeins fátt eitt talið af afrekum Auðunns í golfíþróttinni.

Auðunn er mörgum að góðu kunnur sem frábær golfkennari, var lengi starfandi hjá Golfklúbbnum Keili en eftir ársdvöl í Ástralíu sneri hann aftur til heimabæjarins, Ísafjarðar, í fyrra, þar sem hann kennir nú golf. Auðunn hefir keppt í fjölmörgum opnum mótum og alþjóðlegum mótum. Hann reyndi m.a. fyrir sér á sænsku mótaröðinni 2007.

Kona Auðuns er Kristín Rúnarsdóttir.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

 

Audunn Einarsson  (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Simone Thion de la Chaume, f. 24. nóvember 1908 – d.  4. september 2001; Scott Hoch f. 24. nóvember 1955 (57 ára)

…… og …….

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is