Ásgerður Þórey Gísladóttir, klúbbmeistari Golfklúbbs Hveragerðis 2013. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 18. 2013 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ásgerður Gísladóttir – 18. september 2013

Afmæliskylfingur dagsins er  Ásgerður Gísladóttir. Ásgerður er fædd 18. september 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag.  Hún er í Golfklúbbi Hveragerðis og er m.a. klúbbmeistari GHG 2013.  Ásgerður hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum t.a.m. Lancôme mótinu á Hellu og Vormótum í Sandgerði og verið sigursæl þar.  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Ásgerður Gísladóttir (50 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Ari Friðbjörn Guðmundsson, 18. september 1927 forystumaður í samtökum kylfinga um árabil

…… 0g ……

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is