Ragnheiður Jónsdóttir | september. 10. 2014 | 22:00

Afmæliskylfingur dagsins: Arnold Palmer —— 10. september 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Arnold Palmer, 10. september 1929 en þessi golfgoðsögn á 85  árs afmæli í dag!!!!  Palmer lék í bandaríska háskólagolfinu í sama háskóla og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, þ.e. Wake Forest. Hann hefir sigrað 95 sinnum á ferli sínum þar af 62 sinnum á PGA Tour og þar af 7 sinnum á risamótum.  Eina risamótið sem Palmer tókst aldrei að sigra á var PGA Championship.  Af mörgum heiðursviðurkenningum sem Arnie, eins og hann er oftast kallaður hefir hlotið á ferli sínum mætti nefna að hann hlaut PGA Tour Lifetime Achievement Award árið 1998 (þ.e. viðurkenning PGA Tour fyrir ævistarf) og 1974  (fyrir 40 árum síðan) hlaut Arnie inngöngu í frægðarhöll kylfinga (ens the World Golf Hall of Fame). Eins hefir Palmer hlotið gullorðu Bandaríkjaþings, en hana fékk hann fyrir 2 árum 12. september 2012.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Alfreð Viktorsson f. 10. september 1932 (82 ára); Larry Gene Nelson, 10. september 1947 (67 ára); Michael Zinni 10. september 1948 (66 ára);  Bill Rogers 10. september 1951 (63 árs);  Martha Nause, 10. september 1954 (60 ára stórafmæli!!!);  Lloyd Saltman, 10. september 1985 (29 ára);  Min Seo Kwak, 10. september 1990 (24 ára)  …… og ……

Robynne Cook (46 ára)
 Bíóhöllin Akranesi (72 ára)

Dagný ÞórólfsdóttirGKJ (Til hamingju Dagný!!!)

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!!!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is