Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2013 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Anton Helgi Guðjónsson – 17. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Anton Helgi Guðjónsson. Anton Helgi er fæddur 17. desember 1993 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Anton Helgi er klúbbmeistari Golfklúbbs Ísafjarðar (GÍ) 2013.

Hann hefir jafnframt staðið sig vel í mörgum opnum mótum; af fjölmörgum dæmum mætti geta að hann sigraði á Ísnum, sjómannadagsmóti á Tungudalsvelli á Ísafirði, 3. júní 2012; hann sigraði á Þórbergsmótinu 24. júní 2012 á Litlueyrarvelli í Bíldudal; og hann var á besta skorinu í Opna klofningsmótinu hjá Golfklúbbnum Glámu á Þingeyri (GGL) 1. júlí 2012.

Anton Helgi Guðjónsson (20 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Rocco Mediate, 17. desember 1962 (50 ára merkisafmæli!!!);  Gunnar Þór Gunnarsson, GR, 17. desember 1964 (49 ára); Tim Clark, 17. desember 1975 (37 ára);  Tracey Boyes, 17. desember 1981 (31 árs) ….. og …..

Hafdís Alda (16 ára!!!! – GK og klúbbmeistari Golfklúbbs Hellu 2011, 2012 og 2013 í kvennaflokki. Sjá má viðtal Golf1 við Hafdísi Öldu með því að SMELLA HÉR:  )

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is