Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Anna Sólveig Snorradóttir – 20. maí 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Anna Sólveig Snorradóttir, GK. Anna Sólveig er fædd 20. maí 1995 og á því 21 árs afmæli í dag. Anna Sólveig er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hún byrjaði 9 ára að æfa golf, en var 8 ára þegar hún byrjaði fyrst að prófa. Þótt ung sé að árum á hún langan og farsælan feril í golfinu. Hún varð m.a. Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni stúlkna 2013. Í fyrra 2014 spilaði Anna Sólveig á Eimskipsmótaröðinni og var í sveit GK, sem varð Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ.

Í dag er Anna Sólveig í afrekshóp GSÍ. Anna Sólveig var m.a. andlit Smáþjóðaleikanna, sem fram fór á Íslandi í fyrra, þ.e.  1.-6. júní 2015. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið

Anna Sólveig Snorradóttir - Innilega til hamingju með afmælið! Mynd: Í einkaeigu

Anna Sólveig Snorradóttir (21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Dave Hill, 20. maí 1937- d. 27. september 2011 (bróðir Mike Hill, f. 27. janúar 1939) Vann Harry Vardon skjöldinn ´69; Geir Jónsson, 20. maí 1964 (52 ára); Liselotte Neumann, 20. maí 1966 (50 ára STÓRAFMÆLI); David Smail, 20. maí 1970 (46 ára); Hilmar Ingi, 20. maí 1975 (41 árs);  Bylgja Dís Erlingsdóttir GSG, 20. maí 1978 (38 ára); Þórunn Ósk Haraldsdóttir, 20. maí 1979 (36 ára); Bjartmar Már 20. maí 1990 (26 ára) og  … Ingunn Henriksen.

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is