Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 12. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Anna Snædís Sigmarsdóttir – 12. febrúar 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Anna Snædís Sigmarsdóttir. Anna Snædís er fædd 12.febrúar 1962 og því 57 ára í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og ein af forgjafarlægstu kvenkylfingum á Íslandi. Anna Snædís er móðir afrekskylfingsins Önnu Sólveigar Snorradóttur.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gudrun Larusdottir, f. 12. febrúar 1942 (77 ára); Hjörtur Lárus Harðarson, 12.febrúar 1951 (68 ára); Desmond John Smyth, 12. febrúar 1953 (66 ára); Tadahiro Takayama, 12. febrúar 1978 (41 árs); Shiv Kapur, 12. febrúar 1982 (36 ára); Lejan Lewthwaite, 12. febrúar 1991 (28 ára); Regan De Guzman (filipseyskur kylfingur sem var á LPGA – 27 ára) ….. og…..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is