Andri Þór Björnsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andri Þór Björnsson – 10. nóvember 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Andri Þór Björnsson. Andri Þór er fæddur í Reykjavík 10. nóvember 1991 og er því 23 ára í dag. Hann er afrekskylfingur í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR).

Andri Þór stundar nám og spilar með golfliði Nicholls State háskólanum í Thibodeaux í Louisiana. Hann er búinn að standa sig vel í haust með Geaux Colonels, þ.e. golfliði skólans og hefir oftar en ekki verið á besta skorinu í liðinu. Sjá má viðtal Golf 1 við Andra Þór með því að SMELLA HÉR:

Komast má á heimasíðu Andra Þórs til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Andri Þór Björnsson (23 ára – Innilega til hamingju!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Morris Hatalsky, 10. nóvember 1951 (63 ára);  Lee Cross Rinker, 10. nóvember 1960  (54 ára); Tish Certo, 10. nóvember 1964 (50 ára stórafmæli!!!); Sigmundur Einar Másson, GKG, 10. nóvember 1983 (31 árs)  …… og …….
23 years old
Write on Andri’s Timeline…
Allt Um Ísland (26 ára)

Gylfi Ægisson (68 ára)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is