Andri Már Óskarsson, klúbbmesitari GHR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andri Már Óskarsson – 26. maí 2016

Það er Andri Már Óskarsson, GHR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Andri Már fæddist 26. maí 1991 og er því 25 ára í dag. Andri Már er marfaldur klúbbmeistari karla í GHR og hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum með frábærum árangri; varð t.a.m. í 2. sæti á 1. maí móti GHR og Grillbúðarinnar 2014 . Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér:

1-a-Andri

Andri Már Óskarsson (25 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ágúst Þór Árnason (62 ára); Erlendur Samúelsson, 26. maí 1959 (57 ára); Jamie Spence, 26. maí 1963 (53 árs); Jóhanna Vigdís Arnardóttir, 26. maí 1968 (48 ára); Gunnar Hansson (45 ára); Herborg Arnarsdóttir, GR, 26. maí 1975 (41 árs).

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is