Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andri Már Óskarsson – 26. maí 2013

Það er Andri Már Óskarsson, GHR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Andri Már fæddist 26. maí 1991 og er því 22 ára í dag. Andri Már er klúbbmeistari GHR 2011 og frábær kylfingur með -0.4 í fgj.  Andri Már m.a. valinn íþróttamaður HSK 10. mars 2012  Í dag, á afmælisdaginn er Andri Már að spila á Eimskipsmótaröðinni á Garðavelli á Akranesi, en hann komst í gegnum niðurskurð í gær, er í 27. sæti á samtals 16 yfir pari (80 80). Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Jamie Spence, 26. maí 1963 (50 ára merkisafmæli!!!); Herborg Arnarsdóttir, GR,  26. maí 1975 (38 ára)

….. og  ……

 

Gunnar Hansson (42 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is