Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2014

Afmæliskylfingur dagsins er danski kylfingurinn Amanda Moltke-Leih. Amanda er fædd í Kaupmannahöfn 30. ágúst 1976 og er því 38 ára í dag. Foreldrar Amöndu voru diplómatar og var hún því á eilífu flandri um heiminn, þegar hún var yngri. Hún byrjaði ung að spila golf og hætti á LET eftir farsælan feril 2011, til þess að gerast lögreglukona.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: danski kylfingurinn  Francisco Abreu, 30. ágúst 1943 (71 árs);   Beth Bader, 30. ágúst 1973 (41 árs); ….. og ….. 

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is