Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2012 | 13:30

Afmæliskylfingur dagsins: Álvaro Velasco Roca – 15. maí 2012

Afmæliskylfingur dagsins er spænski kylfingurinn Álvaro Velasco Roca. Álvaro er fæddur í Barcelona, 15. maí 1981 og er því 31 árs í dag. Hann komst í fréttirnar á fimmtudaginn s.l. vegna frábærs opnunarhrings upp á 64 högg á Madeira Islands Open, sem Portúgalinn Ricardo Santos vann síðan s.s. öllum er í fersku minni. En Alvaro Velasco reyndi svo sannarlega að krækja sér í fyrsta sigurinn á Evrópumótaröðinni á þessu móti og hann hefir verið svo nærri því að það hlýtur að fara að ganga upp eitthvert næstu móta.

Velasco var á golfstyrk í Coastal Carolina University þaðan sem hann útskrifaðist með gráðu í viðskiptafræði (ens. business administration).  Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2005 og komst á Evróputúrinn 2008.  Velasco var meðal 100 efstu á stigalista Evrópumótaraðarinnar 2008 og spilaði því 2009 á Evróputúrnum en var ekki heppinn það ár og spilaði næsta keppnistímabil 2010 á Áskorendamótaröðinni (ens. Challenge Tour). Þar vann hann tvívegis það ár á Fred Olsen Challenge de España, á Kanaríeyjum og síðan á Kazakhstan Open, sem er stærsta mótið á  Challenge Tour. Hann var einnig efstur á stigalista Challenge Tour 2010 og tryggði sér þannig að nýju kortið sitt á Evrópumótaröðina 2011, þar sem hann hefir haldist síðan.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Henry Dudley Wysong, Jr., 15. maí 1939 – 29. mars 1998); James Bradley Simons (15. maí 1950 – 8. desember 2005) Indverski kylfingurinn SSP Chowrasia,  15. maí 1978 (34 ára);  Pablo Larrazabal, 15. maí 1983 (29 ára)  Caroline Rominger, 15. maí 1983  (29 ára) – svissneskur kylfingur á LET ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is