Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 6. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Alison Nicholas —- 6. mars 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Alison Nicholas.

Alison Nicholas fæddist á Gíbraltar 6. mars 1962 og á því 60 ára merkisafmæli í dag.

Nicholas gerðist atvinnukylfingur 1984. Á atvinnumannsferli sinnum sigraði hún 18 sinnum, m.a. 4 sinnum á LPGA. Hún sigraði í 2 risamótum kvennagolfsins; í fyrra skiptið 1987 á Women´s British Open og í hitt skiptið 10 árum síðar, 1997,  á US Women´s Open.

Hún var fyrirliði sigurliðs Evrópu í Solheim Cup 2011.

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Richard H. Sikes, 6 mars 1940 (82 árs); Ari Kristinn Jónsson, 6. mars 1949 (73 ára); Kristín Dagný Magnúsdóttir, 6. mars 1949 (73 ára); Alison Nicholas, fyrirliði sigurliðs Evrópu í Solheim Cup 2011, 6. mars 1962 (60 ára); Michael McLean, 6. mars 1963 (Spilaði á Evróputúrnum – 58 ára) Golf Boys-inn Benjamin (Ben) McCully Crane, 6. mars 1976 (46 ára); Grace Park, 6. mars 1979 (43 ára); Óli Ingi Ólason 6. mars 1981 (41 árs) … og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is