Alfreð Brynjar bróðir Ólafíu Þórunnar, hér á 2. keppnisdegi Örninn Golfverslun, 27. maí 2012. Mynd: Golf 1 Afmæliskylfingur dagsins: Alfreð Brynjar Kristinsson – 22. janúar 2020
Afmæliskylfingur dagsins er Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG. Hann fæddist 22. janúar 1985 og á því 35 ára stórafmæli í dag.

Klúbbmeistarar GKG 2013; Ragna Björk Ólafsdóttir og Alfreð Brynjar Kristinsson, Mynd: GKG
Alfreð Brynjar kemur úr mikilli golffjölskyldu; sonur hjónanna Kristins J. Gíslasonar, verkfræðings og Elísabetar M. Erlendsdóttur, ljósmóður. Alfreð á 4 systkini, Elínborgu, Lóu Kristínu, Kristinn Jósep og Ólafíu Þórunni, en síðastnefnda systir Alfreðs Brynjars er 3-faldur Íslandsmeistari í golfi 2011 og Íslandsmeistari í holukeppni (2013) hefir náð lengst íslenskra kylfinga, eftir þátttöku á LET og LPGA.
Alfreð Brynjar bjó í Danmörku í 10 ár. Hann byrjaði 12 ára gamall í golfi, vegna þess að hann vildi spila við föður sinn, Kristinn, sem alltaf var í golfi og eins var eldri bróðir hans Kristinn Jósep, mikil fyrirmynd. Aðrar íþróttir, sem Alfreð Brynjar lagði stund á voru handbolti (með Aftureldingu) og frjálsar. Alfreð Brynjar var kominn í unglingalandsliðið í golfi aðeins 3 árum eftir að hann byrjaði að spila golf og eftir það snerist allt um golf.
Meðal helstu afreka Alfreðs Brynjars er að verða klúbbmeistari unglinga í GKJ. Eins er hann klúbbmeistari GKG 2009 , 2011 og 2013. Alfreð Brynjar varð tvívegis klúbbmeistari unglinga í Himmerland GCC í Danmörku; vann Handelsskolemesterskabet í Danmörku; fór holu í höggi í Scottish Youth Championships, 17. júní 2005; spilaði í liði St. Andrews Presbyterian College, NC, í Bandaríkjunum; var kjörinn leikmaður ársins 2007-2008 af háskóla sínum eða “Most outstanding player in Mens Golf 2007-2008“ og vann sinn fyrsta sigur á Kaupþingsmótaröðinni á Akranesi, í móti 19.-20. maí 2007. Þjálfarar allra skóla í Conference Carolinas kusu hann „All Conference HONORABLE MENTION Men´s Golf 2008.“ Alfreð Brynjar var í 3. sæti á stigalista GSÍ 2008; stigameistari GSÍ 2009 og var í afrekshóp GSÍ 2012. Hann hefir verið í sigursælli sveit GKG í Íslandsmóti klúbbliða undanfarin ár.
Alfreð Brynjar er kvæntur Hönnu Sesselju og þau eiga einn son og eina dóttur.

Alfreð Brynjar, Hanna Sesselja og sonur. Mynd: Í einkaeigu
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Becky Pearson, 22. janúar 1956 (64 ára); Ólöf Ásgeirsdóttir, 22. janúar 1959 (61 árs); Barb Thomas Whitehead, 22. janúar 1961 (59 ára); Sigurbjörn Sigfússon, 22. janúar 1968 (52 ára); Unnur Ólöf Halldórsdóttir, GB, 22. janúar 1973 (47 ára); Sigvarður Hans Ísleifsson, 22. janúar 1979 (41 árs)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum, sem og öllum kylfingum sem afmæli í dag eiga innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
